Stúdentafélag Háskólans á Akureyri hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sé upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann rekur fyrirtæki sem býður upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema.