Dóttur nasista gert að skila portrett af hefðarfrú

Argentínskur dómari hefur úrskurðað að málverki hollensks listaverkasafnara skuli skilað til erfingja hans, áratugum eftir að nasistar stálu því.Málverkið Portrett af hefðarfrú eftir ítalska listmálarann Giuseppe Ghislandi var í eigu Hollendingsins Jacques Goudstikker sem var gyðingtrúar. Goudstikker átti viðamikið safn listaverka, yfir þúsund verk, og skildi stærstan hluta þeirra eftir er hann flúði land örfáum dögum eftir innrás þýska hersins í Holland 1940. Verkunum skiptu háttsettir þýskir embættismenn sín á milli.Portrett af hefðarfrú uppgötvaðist á heimili í argentínska strandbænum Mar de Plata fyrir tilstilli fasteignaauglýsingar í fyrra. Verkið reyndist vera í eigu Patriciu Kadgien, dóttur Friedrich Kadgien, fjármálaráðgjafa Nasistaflokksins. Hann var einn fjölmargra nasista sem fl
Dóttur nasista gert að skila portrett af hefðarfrú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd