Bandaríkjaher svarar Írönum – Hæfðu þrjú olíuflutningaskip

Bandaríkjaher hæfði þrjú írönsk olíuflutningaskip í loftárásum í hefndarskyni eftir að Íranir skutu á bandarísk herskip.Árásirnar voru í Ómanflóa og Persaflóa, beggja megin Hormússunds.Tvö olíuflutningaskip Írana eru ónothæf eftir árásirnar og þriðja gjöreyðilagt. Árásirnar voru svar Bandaríkjahers við loftárásum Írana sem beindust að tveimur bandarískum skipum, flugmóðurskipi og herskipi, en misstu marks. Engir Bandaríkjamenn særðust í þeim.Miðstjórn Bandaríkjahers, Centcom, greindi frá árásunum á samfélagsmiðlinum X í dag. Haft er eftir flotaforingjanum Brad Cooper að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip Bandaríkjahers verði því svarað með umfangsmeiri árásum – fyrir hverja árás á tvö skip verði þremur sökkt.Haft er eftir Cooper að Bandaríkjaher muni ekki hika við að tortíma olíuflota Í
Bandaríkjaher svarar Írönum – Hæfðu þrjú olíuflutningaskip

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd