Þórönnu Rósu Ólafsdóttur, skólastjóra Rimaskóla, þykir ekki rétt skref að lengja útivistartíma barna. „Mér finnst þetta ekki vera rétt skref miðað við hvaða samfélag við erum komin með í dag,“ segir hún.Reglur um útivistartíma barna eru frá 1992. Þóranna segir að þá hafi verið einfaldara samfélag. Nú sé hins vegar flóknari heimur, meira ofbeldi meðal ungmenna og mikil hópasöfnun.Mennta- og barnamálaráðuneytið birti drög að frumvarpi um breyttan útivistartíma í samráðsgátt í sumar. Í þeim er lagt til að útivistartími fyrir tíu til tólf ára börn sé lengdur um eina klukkustund, til klukkan 21, yfir vetrartímann.Þóranna var gestur Vikulokanna ásamt Erlingi Sigvaldasyni, frístundaráðgjafa og kennaranema, og Árna Guðmundssyni, sérfræðingi í æskulýðsmálum. BREYTT SAMFÉLAG FRÁ 10. ÁRATUGNUM Erl