Bilun hjá Teya: „Þetta er náttúrlega agalegt“

Bilun kom upp hjá fjártæknifyrirtækinu Teya í dag.Langar biðraðir mynduðust í Ikea í Kauptúni. „Það er einhver bilun í kerfum Teya. Þetta er ekki bara hjá okkur heldur fleiri aðilum,“ segir Stefán Rúnar Dagsson, framkvæmdastjóri Ikea.Hann segir að bilunin hafi komið upp fyrir tæpum klukkutíma og reynt sé að leysa vandann. „Við erum að reyna að redda okkur með GSM-posum.“„Þetta er náttúrlega agalegt, þetta er það versta sem maður getur lent í, að þetta komi upp á.“
Bilun hjá Teya: „Þetta er náttúrlega agalegt“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd