Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að gert sé ráð fyrir nokkurra milljarða króna afgangi á rekstri ríkisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem verður lagt fram eftir helgi.„Ég mun auðvitað kynna þetta á mánudaginn og þá verða allar þessar tölur ljósar en þetta hleypur á einhverjum milljörðum,“ segir Daði. Hann ræddi efnahagsmálin í Vikulokunum. Þar talaði hann meðal annars um húsnæðismarkaðinn, verðtryggingu, fjárlögin og hagræðingaraðgerðir.Ekki kemur til greina að koma að kjarasamningum á kostnað hallalausra fjárlaga, sem eru mikilvægasta aðgerð ríkisins til að draga úr vöxtum og verðbólgu, segir fjármála- og efnahagsráðherra. HALLALAUS FJÁRLÖG MIKILVÆGASTA AÐGERÐIN TIL AÐ NÁ NIÐUR VERÐBÓLGU OG VÖXTUM Daði Már segir viðræður vegna forsendubrests kjarasamninga hafa verið upp