Steve Witkoff og Jared Kushner, stjórnarerindrekar Bandaríkjanna, eru komnir til Moskvu til að ræða um tillögur að friði milli Rússlands og Úkraínu. Bandaríski miðillinn Axios segir að þeir hitti Vladimír Pútín Rússlandsforseta.Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í gær að Witkoff og Kushner hefðu með sér tillögur að leiðum til að ljúka þessu mannskæðasta stríði í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það hefur staðið frá því í febrúar 2022.Trump vildi þó engu svara um hvort tillögurnar innihéldu kröfu um að Úkraínumenn gæfu eftir landsvæði eins og hann hefur áður lagt til.Ráðgert er að Witkoff og Kushner haldi til Úkraínu á morgun til að ræða við Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta. RÚSSAR GERA HLÉ Á ÁRÁSUM Í morgun sakaði Zelensky Rússa um að reyna að hindra för erindrekann