Tveir menn voru handteknir í gær eftir að einn hljóp blóðugur inn á lögreglustöð en árásarmaður hafði veist að honum með hníf. Áverkar voru mest á höndum en þeir voru ekki taldir alvarlegir. Mönnunum hafði lent saman vegna þess að annar átti að hafa stolið munum af hinum.