Fjöldi svartklæddra mótmælenda í lambhúshettum lokaði veginum að höfninni í Dover í suðurhluta Englands í morgun með þeim afleiðingum að umferð til og frá höfninni stöðvaðist.Erlendir fjölmiðlar hafa eftir sjónarvottum að mótmælendur gætu verið um 300 talsins. Þeir komu saman til að mótmæla komu flótta- og förufólks til Bretlands og hafa hrópað slagorðið „Stöðvið bátana!“Bresk stjórnvöld hafa á undanförnum árum reynt að finna leiðir til að fækka ferðum flóttamanna yfir Ermarsund. Ferðirnar eru hættulegar og fjöldi fólks hefur farist í tilraunum til að komast frá meginlandi Evrópu til Bretlands.Margra kílómetra langar bílaraðir hafa myndast við höfnina í Dover eftir að svartklæddir mótmælendur í lambhúshettum stöðvuðu umferð. Um þriðjungur af vöruútflutningi Breta til Evrópusambandsins fer