Eitt öflugasta vopn barnanna heitir SPEGILL. Það virkar þannig að ef einhver kallar þig til dæmis heimskan segirðu „spegill“ og þá er viðkomandi orðinn heimskur, ekki þú. Mjög sniðugt. En ég ætlaði ekki að fjalla um spegla heldur peningana sem við erum öll með á heilanum. Sem ákvarða lífsgæði okkar og hamingju en við ræðum mjög lítið um hvernig þeim...