Tveir ljósleiðarastrengir eru slitnir í Mjóafirði sem hefur áhrif á farsíma- og netþjónustu í firðinum.Atli Stefán Yngvason, upplýsingafulltrúi Mílu, segir að búið sé að finna hvar slitið er. Það sé hins vegar á erfiðum stað.Klukkan 7 í morgun fóru menn á staðinn til að reyna að gera við. „Viðgerð er vonandi að hefjast. Aðstæður eru krefjandi.“ Atli Stefán segir aðstæðurnar krefjandi bæði vegna staðsetningar og veðurs.Bilunin hefur staðið í tæpan sólarhring, eða frá því klukkan 10 í gærmorgun.