Hægar suðvestlægar eða breytilegar áttir verða yfir landinu í dag. Dálítil rigning eða súld verður norðan- og austantil, en stöku skúrir síðdegis.Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.Sunnan heiða verður yfirleitt bjart með köflum og með kvöldinu léttir víða til. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Á morgun nálgast lægð úr suðri með vaxandi austan- og norðaustanátt. Útlit er fyrir norðan hvassviðri með suðausturströndinni annað kvöld með rigningu og suðaustan- og austantil undir miðnætti.Það verður áfram milt veður sunnanlands, einkum suðvestan. Fyrir norðvestan verður heldur svalara.