Margir fórust í öflugri sprengingu sem varð í nótt í herstöð í bólivísku borginni Viacha, um 30 kílómetra suðvestan við höfuðborgina La Paz.Lögreglumenn standa vörð við herstöðina í Viacha.EPA / StringerNákvæmur fjöldi látinna liggur ekki fyrir. Reuters hefur eftir yfirmanni heilbrigðismála að tíu til fimmtán hafi látið lífið en lögregla tjáði AFP að tveir hefðu farist. Varnarmálaráðherrann Ernesto Justiniano hefur ekki staðfest hve margir týndu lífi.Hann segir 58 hafa særst í sprengingunni, þar af 52 almenna borgara. Ráðherrann segir björgunarsveitir leita af kappi í rústum húsa. Hann segir enn ekki vitað hvað olli sprengingunni en staðfestir að búnaður til eldflaugagerðar var geymdur í herstöðinni.