Hlutfall breskra barna og ungmenna á aldrinum ellefu til tuttugu og fjögurra ára, sem upplifa sig einmana, hefur fimmfaldast frá 2014.Ástæðan er talin breyting á félagslegu umhverfi ungs fólks sem eyðir æ meiri tíma á samfélagsmiðlum.Fjallað var um málið í Speglinum. EIGA FÆRRI NÁNA VINI EN ÁÐUR Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður. Árið 2014 sagðist eitt prósent ungmenna á aldrinum 11-24 ára ekki eiga neina nána vini. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar er það hlutfall komið upp í 5 prósent.Ungmennin segjast auk þess vera óánægðari en áður með þau vináttusambönd sem þau eiga.Niðurstöðurnar hrekja þá algengu staðalímynd að einmanaleiki sé fyrst og fremst vandamál meðal aldraðra.Rannsóknin er á vegum Institute for Public Policy Research. Meðal ástæðna sem rannsakendu