Þúsundir hafa vottað Haraldi konungi virðingu sína dag hvern

Þúsundir hafa sýnt Haraldi heitnum Noregskonungi virðingu sína síðustu daga með því að koma að kistu hans í konungskapellunni í Oslóardómkirkju. Norska hirðin segir að fólk geti þurft að bíða allt að fjórar klukkustundir í röð eftir að fá að hneigja sig fyrir konunginum í hinsta sinn.Til að minnka biðina hefur hirðin ákveðið að hafa kapelluna opna til klukkan ellefu að kvöldi fram á þriðjudag. Daginn eftir verður Haraldur jarðsunginn og búist er við fjölda tiginna gesta hvaðanæva úr heiminum.Því er óhætt að segja að allt sé á öðrum endanum í Osló við skipulagningu og undirbúning athafnarinnar. Hluta miðborgarinnar verður lokað fyrir almennri umferð og hert öryggisgæsla verður í borginni og við landamærin.Yfirmenn lögreglu segjast enga áhættu ætla að taka. Norska ríkisútvarpið greindi frá þ
Þúsundir hafa vottað Haraldi konungi virðingu sína dag hvern

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd