Erindrekar Bandaríkjastjórnar með friðaráætlun uppi í erminni

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir sendimenn sína, Steve Witkoff og Jared Kushner, mæta til Rússlands og Úkraínu um helgina með áætlun um hvernig ljúka eigi fjögurra ára löngu innrásarstríðinu. Þeir eru sagðir væntanlegir til Moskvu í dag og Kyiv á morgun. Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í loftárásum Rússlandshers á Dnipropetrovsk suðvestanvert í Úkraínu í nótt að sögn hernaðaryfirvalda. Tveir íbúar níu hæða fjölbýlishúss í borginni Boryspil, skammt frá Kyiv, særðust í loftárás í gærkvöld. Herir beggja ríkja láta langdrægum eldflaugum og drónum rigna á báða bóga þrátt fyrir tillögu Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta um vopnahlé meðan á dvöl bandarísku sendimannanna stendur. Trump segir erindrekana hafa uppi í erminni uppástungu um leið til að ljúka þessu mannskæðasta stríði í Evróp
Erindrekar Bandaríkjastjórnar með friðaráætlun uppi í erminni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd