Karlmaður um fertugt hlaut alvarlega áverka þegar stór diskókúla féll ofan á hann á skemmtistað á hafnarsvæðinu Refshaleøen í dönsku höfuðborginni Kaupmannahöfn. Þrír til viðbótar slösuðust lítillega.Þúsundir gesta voru saman komin á fyrirtækjaskemmtun þegar slysið varð. Danska ríkisútvarpið hefur eftir varðstjóra hjá Kaupmannahafnarlögreglunni að maðurinn sé úr lífshættu og að ástand hans sé stöðugt.Varðstjórinn segir að sérhæft fyrirtæki hafi séð um að hengja diskókúluna upp og að enn sé ekki vitað hvað olli því að hún losnaði og féll niður.Á ljósmyndum má sjá kúluna liggja á gólfi skemmtistaðarins og nokkra lögreglumenn standa umhverfis hana. Öllum gestum var gert að yfirgefa skemmtistaðinn sem er lokaður meðan rannsókn stendur yfir.Refshaleøen var eitt sinn líflegt iðnaðarsvæði, norður