Reykur stígur til himins eftir árásir Rússlandshers á Kyiv í gær.EPA / SERGEY DOLZHENKOTveir íbúar níu hæða fjölbýlishúss í borginni Boryspil, skammt frá úkraínsku höfuðborginni Kyiv, særðust í loftárás Rússlandshers í kvöld. Héraðsstjórinn Tymur Tkachenko greinir frá þessu í færslu á samskiptamiðlinum Telegram. Vefmiðillinn Kyiv Independent segir efstu hæðir hússins hafa skemmst og að eldur logi í þaki þess.