Tölvuleikjafyrirtækið Tetris segir af og frá að það hafi veitt heimild til að nýta þau alkunnu myndrænu einkenni leiksins sem notuð eru í einum af fimm tölvuleikjum sem Trump-stjórnin setti í birtingu á vefsíðu Hvíta hússins á fimmtudag.Allir leikirnir byggjast á stefnumálum Donalds Trump forseta. Spilarar geta meðal annars reist landamæramúr í leiknum Build the Wall sem byggður er á Tetris.Fyrirtækið kveðst í yfirlýsingu til AFP-fréttaveitunnar hvorki hafa veitt leyfi fyrir notkun vörumerkisins Tetris né gefið eftir hugverkaréttindi. Fyrirtækið kveðst líta höfundarréttarbrot mjög alvarlegum augum, trúa á sameiningarmátt og samvinnu en alls ekki sundrungu. Verið sé að fara yfir málið innan fyrirtækisins.Hinir tölvuleikirnir minna mjög á efni og hönnun frá öðrum framleiðendum á borð við Seg