Í vor stóð til að hætta allri starfsemi á flugvellinum í Narsarsuaq á Grænlandi eftir 85 ára starfsemi. En fljótt skipast veður í lofti því landsstjórnin og varnarmálaráðuneytið danska hafa sammælst um að halda vellinum tímabundið opnum áfram, hið minnsta eitt ár til viðbótar, meðan kannað verður hvort Danir og Atlantshafsbandalagið hafi þörf fyrir hann.Varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus segir að með því gefist tækifæri til að skýra langtímaþarfir danska hersins, NATÓ og annarra bandamanna varðandi nýtingu Narsarsuaq-flugvallar. Með framlengingu á starfsemi flugvallarins fylgir jafnvirði allt að 851 milljónar íslenskra króna fjárframlag til heimastjórnarinnar frá varnarmálaráðuneytinu.