Aðdáendur snúða og kleinuhringja með karamelluglassúr hafa komið að tómum kofanum síðustu vikur. Ástæðan er landlægur skortur á glassúrnum sem er sérframleiddur í Bandaríkjunum fyrir íslenskan markað. Þetta segir Vilhjálmur Þorláksson, stjórnarmaður hjá Landssambandi bakarameistara og framkvæmdastjóri Gæðabaksturs.