Aðdáendur karamellusnúða hafa komið að tómum kofanum síðustu vikur. Ástæðan er landlægur skortur á karamelluglassúr sem er sérframleiddur í Bandaríkjunum fyrir íslenskan markað. Þetta segir Vilhjálmur Þorláksson, stjórnarmaður hjá Landssambandi bakarameistara og framkvæmdastjóri Gæðabaksturs.