Minnst þrír týndu lífi í loftárásum Ísraelshers á Líbanon

Að minnsta kosti þrír týndu lífi og á þriðja tug særðist þegar Ísraelsher gerði loftárásir á fimm stöðum í suður- og austurhluta Líbanons í kvöld. Sprengjur hæfðu meðal annars héruðin Týros og Bekaa en þyngstar voru árásirnar á Nabatieh-hérað þar sem tveir ungir menn létu lífið. AFP-fréttaveitan hefur þetta eftir heilbrigðisráðuneyti Líbanons.Vopnahlé er í gildi milli Ísraelsríkis og Hezbollah-hreyfingarinnar í Líbanon. Líbanska ríkisfréttastöðin NNA segir Ísraelsher hafa beint árásum sínum að hinum hernaðarlega mikilvæga Ali al-Taher-fjallshrygg í Nabatieh-héraði norður af Litani-fljóti.Ísraelsmenn segjast hafa náð yfirráðum yfir hryggnum en Hezbollah hefur ekki staðfest það. Varnarmálaráðherrann Israel Katz sagði í gær að allt yrði gert til að koma í veg fyrir að Hezbollah nái vopnum sín
Minnst þrír týndu lífi í loftárásum Ísraelshers á Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd