Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hafnaði á síðasta ári umsókn eiganda einbýlishúss í Hólahverfi í Breiðholti um leyfi fyrir umtalsverðum breytingum á eigninni sem þó hafði verið ráðist í fyrir hálfri öld. Samkvæmt skipulagi var um einbýlishús að ræða með íbúð á efri hæð upp á 130,2 fermetra, 57,5 fermetra íbúð í kjallara og 34 fermetra kjallara.