Rafmagn er alls staðar komið á eftir rafmagnsleysi í Úlfarsárdal í Grafarholti, Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi í kvöld. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Veitna.Í tilkynningu á vef Veitna segir að bilunina megi rekja til spenna sem slógu út í tengivirki í aðveitustöð við Korpu.Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir að rafmagnsleysið í kvöld tengist ekki rafmagnsleysinu sem varð á svipuðu svæði 14. ágúst.Meðal annars varð rafmagnslaust í MosfellsbæRÚV / Hjalti Haraldsson