Mannréttindasamtökin Amnesty International fordæma harðlega áform fimm ríkja Evrópusambandsins um að koma upp brottvísunarstöð í ríki utan sambandsins.Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi, segir slíkar brottvísunarstöðvar í eðli sínu með þeim hætti að þær brjóti á réttindum fólks. Hún segir alltaf hættu á alvarlegum mannréttindabrotum innan slíkra búða.„Við höfum sagt að þarna sé möguleikinn á svartholi fyrir mannréttindabrot þar sem fólk er fært út fyrir Evrópu. Þessum búðum er hreinlega útvistað til landa þar sem mögulega er mannréttindum fótum troðið nú þegar,“ sagði Anna í sjónvarpsfréttum RÚV. TRYGGJA ÞARF AÐ MANNRÉTTINDI SÉU VIRT Anna kallar eftir meiri fjárveitingu í þennan málaflokk.„Það er alveg ljóst að það þarf að taka á móti fólki sem leitar s