Jarðskjálfti af stærð 3,0 austan Kleifarvatns

Jarðskjálfti varð af stærð 3,0 við Brennisteinsfjöll austan Kleifarvatns klukkan 20:18 í kvöld. Þetta segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Borist hafa ábendingar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst.Í tilkynningunni segir að jarðskjálftar séu algengir á þessu svæði. Skjálftinn í kvöld sé þó sá stærsti sem mælst hefur síðan 18. ágúst 2025. Þá mældist skjálfti af stærð 3,8.Stærð skjálftans hefur verið uppfærð. Áður var hann sagður af stærð 3,4.
Jarðskjálfti af stærð 3,0 austan Kleifarvatns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd