Rafmagnsleysi í Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og á Kjalarnesi

Rafmagnslaust er í Úlfarsárdal í Grafarholti, Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Veitna. Rafmagnsleysið getur haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni.„Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á sem fyrst, en bilunin er inni í aðveitustöð við Korpu. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur,“ segir þar.Í tilkynningu á vef Landsnets segir að spennir 2 í tengivirkinu Korpu hafi leyst út.Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir að rafmagni verði komið á eins fljótt og auðið er.„Við erum á leiðinni á staðinn til að laga þetta. Þetta getur líka haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, sérstaklega uppi í hæðum,“ segir Silja. Vegna þess er ráð að passa að skrúfað sé fyrir heitt vatn til að dr
Rafmagnsleysi í Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og á Kjalarnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd