Framkvæmdastjóri Smárabíós segir framtíð kvikmyndahúsa bjarta þrátt fyrir áskoranir síðustu ára. Aðsóknarmet hafi verið slegið í síðasta mánuði, þegar 38 þúsund gestir sóttu það heim.Tekjur íslenskra kvikmyndahúsa hafa aukist um tæplega 40% milli ára. Framkvæmdastjóri Smárabíós segir framtíð kvikmyndahúsa bjarta þrátt fyrir áskoranir síðustu ára. HEILDARAÐSÓKN AUKIST UM 20% Síðustu ár hefur aðsókn í kvikmyndahús landsins dregist saman, meðal annars vegna tilkomu streymisveitna og niðurhals á netinu. En nú virðist sú þróun vera að snúast við.„Ef við sjáum heildarmarkaðinn og sjáum hvernig hann hefur þróast síðastliðin ár erum við að sjá að þetta ár er upp um sirka 20% frá árinu í fyrra, það er heildaraðsókn á þessu ári. Þannig að þetta stefnir allt í rétta átt,“ segir Konstantín Mikaelss