Þrettán manns, sem búa í hjólhýsum við Sævarhöfða, fá tvo mánuði til að finna sér nýjan samastað. Borgarfulltrúar minnihlutans segja miður að ekki hafi verið leitað annarra lausna.Skrúfað verður fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember og búsetu þar með sjálfhætt. Kona sem þar býr segir íbúa vera að fara á límingunum af kvíða.„Við fengum bréf þess efnis að 1. nóvember ætti að taka af okkur rafmagnið, það á að skrúfa fyrir vatnið og loka fyrir húsnæði þar sem við höfum aðgang að þvottavél og þurrkara,“ segir Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, íbúi í hjólhýsabyggðinni og gjaldkeri Samtaka hjólabúa.Og þar með verður punkturinn settur við búsetu í hjólhýsabyggðinni sem hefur verið við Sævarhöfða í um þrjú ár, en hún var áður á tjaldsvæðinu í Laugardal. Þar búa nú