Tekin hefur verið ákvörðun í skákhreyfingunni um að minnast fyrsta stórmeistara okkar Íslendinga, Friðriks Ólafssonar, með því að halda alþjóðlegt skákmót síðar á árinu. Mótshaldið og undirbúningurinn eru samstarfsverkefni Skáksambands Íslands og Taflfélags Reykjavíkur.