Hæfi Einars Huga Bjarnasonar, formanns Fjölmiðlanefndar, er ekki til umfjöllunar hjá menningar,- nýsköpunar- og háskólamálaráðuneyti. Þetta segir í svari Loga Más Einarssonar ráðherra við fyrirspurn fréttastofu.Greint var frá því á miðvikudag að Einar Hugi, sem er lögmaður, reki skaðabótamál fyrir Gavia Invest gegn Heiðari Guðjónssyni og eignarhaldsfélaginu Úrsusi vegna kaupa þeirra á hlutafé í Sýn fyrir 2,2 milljarða króna. Gavia Invest er stærsti einstaki hluthafinn í Sýn með 18,23% hlut.Loga Más Einarssonar, menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra bendir á að fjölmiðlanefnd sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd og að ákvarðanir um hæfi nefndarmanna fari eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.„Umfjöllun um hæfi einstakra nefndarmanna kemur þar af leiðandi ekki inn á borð mitt sem ráðherra.