Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4.000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 9,3% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um íslenskan vinnumarkað. ATVINNULEYSI VERÐI 5,5% EN SÍÐAN DRAGI ÚR ÞVÍ Atvinnuleysi hefur ekki verið meira frá 2021 þegar atvinnulífið var enn að fást við afleiðingar Covid-faraldursins. Það er ekki útlit fyrir að þetta breytist í bráð. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að það verði 5,5% atvinnuleysi í byrjun næsta árs en síðan dragi hægt úr því.Atvinnuleysi hefur aukist meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Minnst var það á Norðurlandi vestra, 1,7%