Stjórnvöld fimm Evrópuríkja vinna í sameiningu að gerð samnings við eitt ríki utan ESB um að fá að koma upp brottvísunarstöð. Þangað myndu ríkin senda fólk sem neitað hefur verið um dvöl. Ekki hefur verið gefið upp hvaða land það er sem ríkin fimm eru að semja við.Ráðherrar frá Grikklandi, Austurríki, Þýskalandi, Hollandi og Danmörku samþykktu á fundi í Kaupmannahöfn í dag að semja við ákveðið ríki utan ESB um að fá að setja þar upp brottvísunarbúðir. Ráðherra innflytjendamála í Danmörku, Morten Bodskov, sagði við fjölmiðla að hann búist við að samningur verði í höfn um áramót. DÖNSK STJÓRNVÖLD STEFNA AÐ ÞVÍ AÐ SENDA FÓLK Í BROTTVÍSUNARBÚÐIR 2027 Stjórnvöld í Danmörku stefna að því að senda umsækjendur um alþjóðlega vernd í brottvísunarbúðir utan ESB strax á næsta ári. Bodskov segir í y