Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti lagði til í dag að samið verði um vopnahlé við Rússa þá daga sem erindrekar Bandaríkjanna, Steve Witkoff og Jared Kushner, heimsækja Kyiv og Moskvu.Witkoff og Kushner eru væntanlegir til höfuðborga Úkraínu og Rússlands um helgina í þeim tilgangi að reyna að miðla málum svo hægt verði að binda endi á stríðið. Þetta verður þeirra fyrsta heimsókn til Kyiv. Þeir hafa nokkrum sinnum farið til Moskvu til viðræðna við stjórnvöld þar.Í kvöldávarpi sínu sagði Zelenský Úkraínumenn ekki ætla að gera neinar loftárásir á Rússland á meðan erindrekarnir bandarísku dvelja í Moskvu. Þá biður hann rússnesk stjórnvöld um að gera hið sama á meðan þeir dvelja í Kyiv. „Við erum að gera þetta fyrir þá, ekki fyrir Rússland,“ sagði Zelenský. Hann vilji að viðræður við sendinefnd B