Í dag fundust skordýr í hádegisverði frá Skólamat ehf. í sex skólum – þar af fjórum leikskólum Reykjavíkurborgar. Skordýrin fundust í hrísgrjónum frá Garra sem notuð voru í matargerð.Í yfirlýsingu frá Skólamat segir að ekkert sem hafi komið fram bendi til þess að rekja megi frávikið til framleiðslu, matseldar, framleiðslu eða hreinlætis hjá Skólamat.„Um leið og umfang málsins varð ljóst voru viðbragðsferlar virkjaðir. Viðkomandi hráefni var tekið úr notkun, því fargað og rekjanleiki staðfestur. [...] Málið hefur jafnframt verið tekið upp við birgja,“ segir í tilkynningunni.Þá segir að heilsufarsleg hætta hafi ekki stafað af atvikinu.Leikskólarnir sem um ræðir eru Hraunborg, Borg, Ævintýraborg á Eggertsgötu og Blásalir. Samkvæmt frétt mbl.is voru skordýrin bjöllur sem fundust í kjötsúpu sem