Innviðaráðuneytið úrskurðaði í ágúst að Vestmannaeyjabæ hefði verið óheimilt að reka grunnskólakennara fyrirvaralaust í fyrra. Kennarinn kærði þessa ákvörðun bæjarins. Ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu að sveitarfélagið hefði ekki gætt nægilega að meðalhófsreglu stjórnsýslulaga.Eyjafréttir greindu fyrst frá. SETTI GAMLA HEIÐURSYFIRLÝSINGU Í UMSÓKN TIL RANNÍS Kennaranum var sagt upp vegna umsóknar um að sækja Erasmus+ námskeið sumarið 2025 ásamt öðrum kennurum. Með í umsóknina til Rannís hafði kennarinn sett svokallaða heiðursyfirlýsingu sem skólastjórinn hafði undirritað vegna þátttöku skólans í öðru verkefni.Þetta þótti Vestmannaeyjabæ vera til marks um einbeittan brotavilja og skjalafals. Þá skrifaði skólastjórinn í bréfi til kennarans að til skoðunar væri hvort hann hefði reynt a