Utanríkisráðuneytið vill ekki veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara sérstökum spurningalista sem ríkisstjórn Bandaríkjanna sendi á önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og hvernig honum hafi verið svarað, ef svo er. Eðli umræddra upplýsinga og hagsmunir sem þær tengjast mæli gegn opinberun þeirra.