Celine Dion söng óvænt fyrir aðdáendur á götu úti

Stórsöngkonan Celine Dion kom aðdáendum sínum á óvart í París á þriðjudag þegar hún staldraði við á leið sinni út af hóteli. Þeir voru að raula lagið Pour que tu m ́aimes encore og hún tók undir með þeim.Dion er frá Kanada en heldur þessa dagana til á hóteli í París. Hún heldur sextán tónleika í borginni næstu tvo mánuði. Þetta verða fyrstu tónleikar hennar síðan hún tilkynnti 2022 að hún hefði verið greind með sjaldgæfa taugaröskun sem á ensku kallast Stiff person Syndrome.Aðdáendur Dion fögnuðu henni ákaft þegar hún tók undir með þeim í París á þriðjudag.
Celine Dion söng óvænt fyrir aðdáendur á götu úti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd