Dómari í máli gegn Lindsay Clancy, sem er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, hefur ógilt réttarhöldin. Kviðdómur komst ekki að niðurstöðu um sakhæfi Clancy. SEGIST HAFA HEYRT RADDIR SEM SKIPUÐU HENNI AÐ MYRÐA BÖRNIN Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, Coru, fimm ára, Dawson, þriggja ára, og Callan, sem var átta mánaða, á heimili fjölskyldunnar í janúar 2023. Hegðun hennar hafði breyst eftir fæðingu yngsta barnsins í maí 2022.Hún þjáðist af kvíða, átti erfitt með svefn og var hrædd við að vera ein. Fyrir dómi sagði fyrrverandi tengdamóðir Clancy hana hafa sagt sér frá vanlíðan sinni í nóvember sama ár.Síðdegis 24. janúar 2023 fór eiginmaður Clancy í apótek. Þegar hann sneri til baka fann hann Clancy alvarlega slasaða í bakgarði hússins sem þau bjuggu í í Duxbury í