Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til á meðan framkvæmdum stendur.Skólarnir í Breiðdalsvík og Stöðvarfirði voru sameinaðir 2018 vegna fækkunar barna. Síðan þá hefur skólinn starfað á báðum stöðum og starfsfólk og nemendur fara á milli bæjanna tveggja eftir stundatöflu. Leikskólabörn eru alla daga í kennslu á Breiðdalsvík.Steinþór Snær Þrastarson, skólastjóri, segir búið að ráðstafa um 60 milljónum króna í verkið sem er áætlað að taki um þrjá mánuði. Innanhúss framkvæmdirnar eiga þó aðeins að standa næstu fjórar vikur og raska skólastarfi lítillega á meðan. KENNSLA FYRIR GRUNNSKÓLABÖRNIN VERÐUR Á STÖÐVARFIRÐI „Grunnskólinn verður á Stöðvarfirði allavega næstu 3-4 vikur en leikskól