Sérsveitin kölluð að heimahúsi á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra var kölluð að íbúðarhúsi við Engimýri á Akureyri um klukkan hálf tvö í dag. Sérsveit ríkislögreglustjóra fór einnig á vettvang.Málið er enn í vinnslu og lögregla gefur hvorki upp hvort einhverjir séu í haldi né hvers vegna lögregla þarfnaðist liðsinni sérsveitarinnar. Öðrum íbúum hafi þó ekki verið hætta búin. Frekari upplýsingar verði veittar síðar.Lögregla var kölluð að heimahúsi á Brekkunni á Akureyri í dag.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Sérsveitin kölluð að heimahúsi á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd