Treyjudagurinn er í dag. Þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem haldið er formlega upp á hann. Fólk er hvatt til að klæðast uppáhalds íþróttatreyju sinni til að sýna samstöðu og stuðning við börn sem glíma við krabbamein og fjölskyldur þeirra.Á vef Treyjudagsins kemur fram að hann hafi fyrst verið haldinn á Englandi 2013. Treyjudagurinn, í núverandi mynd, byggist á danskri fyrirmynd frá 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og nú hefur Ísland bæst í hópinn.Nemendur og starfsfólk Öldutúnsskóla í Hafnarfirði tóku sig til og mynduðu hring í kringum skólann. Stefán Jón Ingvarsson, myndatökumaður fréttastofunnar, kíkti við og myndaði gjörninginn.