Rússlandsher gerði í dag drónaárás á höfuðstöðvar SBU, öryggisstofnunar Úkraínu, í Kyiv. Níu manns, hið minnsta, særðust í árásinni, samkvæmt Kyiv Independent. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir í færslu á Telegram að ljóst sé að árásardrónum hafi verið beint að byggingunni. Utanríkisráðherra Úkraínu, Andri Sibiya, fordæmir árásina harðlega og segir hana mikla stigmögnun sem kalli á einörð viðbrögð. Rússlandsher hafi gert þessa árás þrátt fyrir að yfir standi tilraunir til að hefja viðræður á ný. Þar með sé verið að hafna diplómatískum leiðum.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu.AP / Francisco Seco