Anna Lilja Ragnarsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Suðurlandi og Sæunn Magnúsdóttir sem sýslumaður í Vestmannaeyjum. Setningarnar tóku gildi 22. ágúst og gilda til 31. desember 2026. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs Íslands.Setningum Önnu og Sæunnar er ætlað að tryggja stöðugleika og samfellu í stjórnun og starfsemi embættanna þar til sýslumannsembættin sameinast í eitt 1. janúar 2027.Kristín Þórðardóttir var skipuð sýslumaður nýs sameinaðs embættis 21. ágúst. Hún gegndi áður embætti sýslumanns á Suðurlandi.RÚV / Kristín Sigurðardóttir