Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær að stytta gjaldskyldu á bílastæðum í miðborginni. Hafði tillaga þessa efnis verið samþykkt daginn áður í umhverfis- og skipulagsráði. Fulltrúar minnihlutans andmæltu tillögunni en á misjöfnum forsendum þó.