Garðyrkjubændur keppast nú við að ná útiræktaða grænmetinu sínu í hús og þeir garðyrkjubændur sem eru með ræktunina í upphituðum gróðurhúsum eru stöðugt að tína uppskeruna af plöntunum.Á morgun verður haldin sérstök uppskeruhátíð á Flúðum og næsta nágrenni þar sem allir eru velkomnir að mæta.Aldís Hafsteinsdóttir er sveitarstjóri Hrunamannahrepps.„Þessi hátíð hefur verið árlega hér í mörg ár þar sem því er fagnað að uppskeran sé komin í hús. Hér er náttúrulega mjög mikið framleitt af hvers kyns grænmeti og auðvitað mikið meira en það, þetta er mikið matvælahérað og mikil matvælasveit. Það verður markaður hér í félagsheimilinu þar sem það er verið að selja alls konar afurðir, grænmeti, kjöt, hannyrðir og handverk og annað slíkt. Svo er líka verið að selja grænmeti bara beint frá framleiðend