Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, segir langskynsamlegast fyrir ríkisstjórnina að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka. Hún segir óásættanlegt að óvissa ríki um réttaráhrif umsóknarinnar og telur að ríkisstjórnin verði að fylgja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar eftir með skýrum hætti.