Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem forseti sambandsins á komandi þingi ASÍ í næsta mánuði. Finnbjörn segist kominn á eftirlaunaaldur og að hann telji þá eðlilegt að hætta og að láta nýjan forseta taka við.