Hagstofan mun í dag flytja starfsemi sína úr Borgartúni 21a þar sem stofnunin hefur verið til húsa í 23 ár. Leiðin liggur ská yfir hringtorgið fyrir framan núverandi húsnæði og í Borgartún 26 í rými þar sem dómsmálaráðuneytið og matvælaráðuneytið voru til húsa.